Modern buildings
Í krafti fjöldans

Fjöldakaup.is

Sameinum krafta okkar og fáum betri verð á fasteignum — saman erum við sterkari.

Ferlið í þremur skrefum

Veldu hverfi

Þú ákveður hverfið, götuna eða íbúðina sem hentar þér og þínum.

Kraftur fjöldans

Safnað er saman mögulegum kaupendum fasteigna til að gera kauptilboð í fasteignir án skuldbindinga kaupanda.

Fáðu draumaeignina

Fjöldakaup mun vera kaupendum innan handar við alla nauðsynlega skjalagerð og sjá til þess að kaupandi fái sína drauma eign undir uppsettu verði.

Hvernig gengur þetta fyrir sig?

Gert er kauptilboð í 10-20 íbúðir af ýmsum stærðum, ef kauptilboð er samþykkt þá hefur kaupandinn, án skuldbindinga, mögulega 3-5 daga til að ákveða hvaða eign á að fjárfesta í.

Náið verður unnið með verktökum með úrvinnslu kauptilboða.

Í krafti fjöldans verður hægt að fá eignir á betri verðum en gengur og gerist.

Skráðu þig á listann og við látum vita þegar næsta kauptilboð er á borðinu.

Tilgangur vinnslu persónuupplýsingar um skráða aðila á síðu fjöldakaup.is

Tilgangur Fjöldakaup er meðal annars að safna og vinna með tilgreindar persónuupplýsingar um viðskiptavini í þeim tilgangi að geta veitt honum mögulega afslætti á fasteignum. Persónuupplýsingar koma ekki fram fyrr en mögulegt kauptilboð er gert formlega í nafni tilboðsgjafa. Einnig kann að vera unnið með persónuupplýsingar í þeim tilgangi að greina markaðsleg tækifæri með það fyrir augum að bjóða viðbótar þjónustu eða nýja þjónustu.

Fasteignir á Íslandi

Hugmyndin sem breytir leikreglunum

Hugmynd kviknaði á árinu 2024 er mikið af fasteignum voru að seljast til fjárfesta og félaga sem stunda hvers konar leigustarfsemi fengu þessir aðilar betri verð í formi magnkaupa, hvers vegna ætti almenningur ekki að hafa sama tækifæri til að gera slíkt hið sama og fá þá mögulega betra verð.

Halldór Kristján Sigurðsson löggiltur fasteignasali stendur að baki fjöldakaup.is og er ábyrgðaraðili.

Við viljum heyra frá þér

Tilbúin/n að hefja ferlið?

Sendu okkur línu og við komum þér af stað á leiðinni að betri fasteignaverðum í krafti fjöldans.

Senda tölvupóst